KRUMKAKA

Krumkakan er skreytt hátíðarbrauð sem steikt er í þar til gerðum krumkökujárnum. Járnin geta verið með ólíkum mynstrum sem oft bera keim af þjóðlegum hefðum eða eru trúarlegs eðlis. Áðurfyrr voru krumkökujárnin dýrir nytjahlutir sem ekki allir höfðu ráð á. Þeir sem ekki áttu slíka gripi gátu þá notið góðs af þjónustu svokallaðra „baksturskvenna“ sem ferðuðust á milli bæja og steiktu krumkökur í sínum eigin krumkökujárnum. Þrátt fyrir nýjar matarhefðir á norskum heimilum hefur krumkakan haldið sínum sess og er fyrir marga ómissandi á jólaborðinu.

is_ISÍslenska